Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska karlalandsliðinu í handbolta fengu rosalegar móttökur fyrir leik liðsins við Frakkland í undanúrslitum HM í gærkvöldi.
Fjölmargir Króatar voru mættir á götur Zagreb fyrir leik til að hvetja liðið áfram er það lagði leið sína í Arena Zagreb-höllina í höfuðborg Króatíu.
Króatíska liðið svaraði kallinu og sigraði það franska 31:28 og tryggði sér sæti í úrslitum gegn Danmörku eða Portúgal.
Myndskeið af móttökunum má sjá hér fyrir neðan en það er á síðu tvö í færslunni.