Þórir Hergeirsson, sigursælasti landsliðsþjálfari í handbolta í sögunni, tjáði sig um árangur íslenska liðsins á HM karla í handbolta við norska ríkissjónvarpið en Ísland rétt missti af sæti í átta liða úrslitum með fimm sigra í sex leikjum.
„Þetta var jafn milliriðill með mörgum góðum liðum. Ísland tapaði aðeins einum leik en það var með of miklum mun og fór því ekki í átta liða úrslitin. Það var svekkjandi en svona er þetta. Þetta snýst um að vinna réttu leikina,“ sagði Þórir.
Þórir náði ótrúlegum árangri með norska kvennalandsliðið og var spurður út í árangur karlaliðs Noregs sem féll einnig úr leik í milliriðli.
„Noregur lék vel í nokkrum leikjum en tveir örlagaríkir leikir skemmdu allt. Þetta voru vonbrigði,“ sagði hann.