Jóhann Ingi Hafþórsson
Sóknarmaðurinn Robbie Sigurðsson verður ekki með íshokkílandsliðinu í leiknum á móti Hollendingum í 2. deild heimsmeistaramótsins í Tilburg. Robbie er að glíma við smávægileg veikindi og ætti að vera klár í á móti Belgum á fimmtudaginn kemur.
Mbl.is er í Tilburg og fylgist vel með gangi mála.