Spænski miðjumaðurinn Nacho Gil er genginn í raðir Þór á Akureyri og mun leika með liðinu í Inkasso-deildinni í sumar. Frá þessu er greint á heimasíðu Þórsara.
Gil er 25 ára gamall sem kemur til Þórsara frá Cd Mostoles URJC. Hann var til skoðunar hjá Þórsurum í æfingaferð félagsins á Spáni á dögunum og í kjölfarið var ákveðið að semja við leikmanninn.