Íslandsmeistararnir sneru taflinu við

Kristinn Pálsson skoraði 20 stig fyrir Val.
Kristinn Pálsson skoraði 20 stig fyrir Val. mbl.is/Eyþór

Íslandsmeistarar Vals höfðu betur gegn Njarðvík, 88:76, í 16. umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik á Hlíðarenda í kvöld.

Valur er í fimmta sæti með 16 stig og Njarðvík er í þriðja sæti með 20 stig.

Í fyrri hálfleik var Njarðvík skrefinu á undan og leiddi með sjö stigum, 41:48, að hálfleiknum loknum.

Í síðari hálfleik snerist taflið hins vegar alfarið við, Valur tók leikinn yfir og vann að lokum þægilegan tólf stiga sigur.

Kristinn Pálsson var stigahæstur hjá Val með 20 stig og 12 fráköst ásamt því að hann stal tveimur boltum. Joshua Jefferson bætti við 18 stigum og Kári Jónsson var með 17 stig.

Stigahæstur hjá Njarðvík var Veigar Páll Alexandersson með 18 stig. Khalil Shabazz bætti við 16 stigum, sex fráköstum, átta stoðsendingum og þremur stolnum boltum.

Valur - Njarðvík 88:76

N1-höllin á Hlíðarenda, Bónus deild karla, 30. janúar 2025.

Gangur leiksins:: 5:6, 25:28, 25:28, 25:28, 29:33, 31:37, 33:39, 41:48, 46:51, 49:58, 55:61, 62:65, 70:65, 80:72, 87:74, 88:76.

Valur: Kristinn Pálsson 20/12 fráköst, Joshua Jefferson 18, Kári Jónsson 17, Adam Ramstedt 9/6 fráköst, Ástþór Atli Svalason 8, Kristófer Acox 7/6 fráköst, Sherif Ali Kenney 7/5 fráköst, Hjálmar Stefánsson 2.

Fráköst: 30 í vörn, 9 í sókn.

Njarðvík: Veigar Páll Alexandersson 18/4 fráköst, Dominykas Milka 16/10 fráköst, Khalil Shabazz 16/6 fráköst/8 stoðsendingar, Mario Matasovic 11/7 fráköst, Evans Raven Ganapamo 11/6 fráköst, Brynjar Kári Gunnarsson 4.

Fráköst: 29 í vörn, 5 í sókn.

Dómarar: .

Áhorfendur: 191

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert