Þorleifur: Þetta er ólýsanlegt

„Þetta er ólýsanlegt eins og allir segja og það er bara satt,“ sagði Þorleifur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, við mbl.is eftir að hann var búinn að lyfta Íslandsmeistaratitlinum. Hann er fyrsti fyrirliði Grindavíkur sem lyftir Íslandsbikarnum í Röstinni.

Röstin var gjörsamlega pakkfull í kvöld og þurfti að troða fólki inn. Hvernig var að spila í svona stemningu?

„Þetta var frábært, alveg ótrúlega gaman. Maður á eftir að setjast niður og hugsa um þetta almennilega en þetta var alveg frábært,“ sagði Þorleifur.

Allt viðtalið má sjá í myndbandinu hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert