Íslandsmeistararnir semja við nýjan Kana

Haiden Palmer.
Haiden Palmer. US PRESSWIRE

Íslandsmeistarar Snæfells hafa náð samningum við öflugan leikmann í kvennalið félagsins í körfuknattleik fyrir komandi átök í Dominos-deildinni. Daman heitir Haiden Palmer og lék hún með Gonzaga háskólanum þar sem hún skoraði 19.5 stig að meðaltali, tók 5 fráköst, gaf 3.5 stoðsendingar og stal 2.5 boltum í leik.

Í fyrra lék hún í Ísrael þar sem hún var með 15.1 stig, 7.2 fráköst og gaf 3.3 stoðsendingar ásamt því að stela 2.3 boltum í leik að meðaltali. Haiden er leikstjórnandi og  173 cm á hæð. Pappírsvinnan er á fullu og verður hún vonandi komin til liðs við leikmannahóp Snæfells fyrir miðjan september mánuð, segir á heimasíðu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert