Líf Odoms að fjara út

Lamar Odom og Khloe Kardashian
Lamar Odom og Khloe Kardashian mbl.is/AFP

Bandaríski körfuboltaleikmaðurinn Lamar Odom liggur milli heims og helju á sjúkrahúsi og er talið ólíklegt að hann lifi af eftir að hafa fundist meðvitundarlaus í herbergi í vændishúsi í gær.

Fyrrverandi eiginkona hans, Khloé Kardashian, er komin til hans á sjúkrabeðinn en þau hafa haldið sambandi þrátt fyrir skilnaðinn í árslok 2013.

Lögregla var kölluð út í vændishúsið Love Ranch í  Crystal, Nevada, vegna meðvitundarlauss manns sem þyrfti að flytja á sjúkrabíl, segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum, Sharon A. Wehrly. 

Að sögn lögreglustjórans var Lamar Odom fyrst fluttur á sjúkrahús í Pahrump en þaðan var farið með hann á sjúkrahús í Las Vegas. Vegna þess hversu hár hann er var ekki hægt að flytja hann á sjúkrahús með þyrlu heldur þurfti að flytja hann með sjúkrabíl.

Ekki hefur verið upplýst hvað ami að Odom, sem er 35 ára að aldri, en samkvæmt Sky News lak einhver hryllingur út úr vitum hans er komið var að honum rænulausum liggjandi á grúfu um miðjan dag í gær. Forsvarsmenn vændishússins segja að Odom hafi drukkið koníak og tekið viagra eftir komuna þangað en ekki sé vitað hvort hann hafi neytt fíkniefna.

Heimildir bandarískra fjölmiðla herma að líffæri Odoms séu byrjuð að gefa sig, bæði nýru hans og lungu og eins er hjartað að gefast upp. Talið er að líf hans sé að fjara út og það sé aðeins tímaspursmál hvenær hann deyi.

Odom var leikmaður Los Angeles Lakers og spilaði með liðinu þegar það varð NBA-meistari 2009 og 2010. Hann lék síðast í NBA-deildinni 2013. Hann kvæntist Kardashian árið 2009 og var brúðkaupið að sjálfsögðu sýnt í sjónvarpinu enda fjölskylda hennar eitt helsta raunveruleikasjónvarpsfólkið í Bandaríkjunum.

Í ágúst 2013 var mikið fjallað um Odom og eiturlyfjafíkn og hjúskaparbrot hans.

Í apríl 2014 skrifaði hann undir samning við New York Knicks en mætti ekki á lokaleik liðsins í deildinni og var látinn fara í júlí 2014.

Þrátt fyrir mikla sigra á íþróttasviðinu hefur einkalíf hans einkennst af hörmungum. Þegar hann var ungur að árum var hann tekinn af heimili sínu vegna heróínfíknar föður hans og ólst Odom upp hjá ömmu sinni eftir að mamma hans lést úr krabbameini þegar hann var 12 ára. 

Árið 2006 dó sex mánaða gamall sonur hans, Jayden, vöggudauða en Odom og unnusta hans, Liza Morales, eignuðust þrjú börn saman.

Lamar Odom berst fyrir lífi sínu

Sjúkrahúsið í Las Vegas þar sem Lamar Odom dvelur
Sjúkrahúsið í Las Vegas þar sem Lamar Odom dvelur AFP
Lamar Odom er fyrrverandi eiginmaður raunveruleikastjörnunnar Khloe Kardashian.
Lamar Odom er fyrrverandi eiginmaður raunveruleikastjörnunnar Khloe Kardashian. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert