Michael Craion úr KR og Helena Sverrisdóttir úr Haukum voru nú í hádeginu útnefnd bestu leikmenn í fyrri hluta Dominos-deilda karla og kvenna í körfuknattleik.
Helena er með 21,8 stig að meðaltali í leik og tekur 13,7 fráköst. Auk þess gefur hún 7,8 stoðsendingar að meðaltali. Haukar eru í efsta sæti Dominos-deildar kvenna með 20 stig, tveimur stigum á undan Snæfelli sem er í öðru sæti.
Craion er með 22,7 stig að meðaltali og tekur 12,5 fráköst. Hann gefur 3,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. KR-ingar eru í öðru sæti Dominos-deildar karla með 18 stig, jafnmörg og topplið Keflavíkur en Suðurnesjapiltar eru í efsta sæti vegna þess að þeir unnu innbyrðisviðureign liðanna í haust.
Úrvalslið kvennadeildarinnar skipa eftirtaldir leikmenn:
Helena Sverrisdóttir – Haukar
Pálína Gunnlaugsdóttir – Haukar
Haiden Palmer – Snæfell
Bryndís Guðmundsdóttir – Snæfell
Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Stjarnan
Besti leikmaður: Helena Sverrisdóttir - Haukar
Besti þjálfari fyrri hluta 2015-16: Ingi Þór Steinþórsson – Snæfell
Dugnaðarforkur Domino´s deildar kvenna: Lilja Ósk Sigmarsdóttir - Grindavík
Úrvalslið karladeildarinnar skipa eftirtaldir leikmenn:
Valur Orri Valsson – Keflavík
Kári Jónsson – Haukar
Haukur Helgi Pálsson – Njarðvík
Michael Craion – KR
Ragnar Nathanaelsson – Þór Þorlákshöfn
Besti leikmaður: Michael Craion - KR
Besti þjálfari fyrri hluta 2015-16: Sigurður Ingimundarson - Keflavík
Dugnaðarforkur Domino´s deildar karla: Ægir Þór Steinarsson - KR