Finnur Freyr Stefánsson mun ekki stýra liði KR af hliðarlínunni þegar það mætir botnliði Snæfells í kvöld í Dominos-deild karla í körfubolta.
Finnur fékk eins leiks bann vegna háttsemi sinnar í bikarleik KR og Fjölnis á mánudaginn, að því er segir í úrskurði aganefndar KKÍ. KR vann leikinn, 115:65.
Ágúst Angantýsson, leikmaður Stjörnunnar, tekur út leikbann annað kvöld þegar Stjarnan sækir Hauka heim. Ágúst fékk eins leiks bann vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar og Grindavíkur í síðustu viku.
Þá fékk Flenard Whitfield, leikmaður Skallagríms, áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vals og Skallagríms í Maltbikarnum á mánudaginn.