Snæfell, sem varð deildarmeistari í Dominos-deild kvenna í körfubolta, og Keflavík, sem hafnaði í öðru sæti deildarinnar, munu leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Ákveðið hefur verið hvaða daga liðin munu spila í einvíginu.
Leikdagarnir verða eftirfarandi:
Snæfell - Keflavík, mánudaginn 17. apríl
Keflavík - Snæfell, fimmtudaginn 20. apríl
Snæfell - Keflavík, sunnudaginn 23. apríl
Keflavík - Snæfell, miðvikudaginn 26. apríl. Ef þarf.
Snæfell - Keflavík, laugardaginn 29. apríl. Ef þarf.