Körfuboltadómarinn Ísak Ernir Kristinsson mun dæma í sumardeild NBA sem fram fer í Las Vegas í næsta mánuði. Sumardeild NBA er hluti af undirbúningstímabili körfuboltans vestanhafs og taka mörg af stærstu liðum Bandaríkjanna þátt í mótinu.
Ísak mun einnig taka þátt í svokölluðu Global Camp, námskeið fyrir efnilega dómara, sem fram fer á sama tíma. Ísak er einn fremsti dómari Íslands og dæmdi hann m.a bikarúrslitaleik karla og tvo leiki í úrslitaeinvígi KR og Grindavíkur í Dominos-deild karla.
Í sumardeild NBA spila ekki hinir hefðbundnu leikmenn liðanna. Hún hugsuð fyrir yngri leikmenn, ásamt því að samningslausir leikmenn fá tækifæri til að sanna sig.