Sigurður Þorsteinsson aftur í Grindavík

Sigurður Gunnar Þorsteinsson í leik með Grindavík.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson í leik með Grindavík. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sigurður Gunnar Þorsteinsson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur skrifað undir samning við Grindavík og mun hann leika með liðinu á komandi tímabili. Sigurður lék síðast með AE Larissa í grísku B-deildinni. 

Sigurður varð Íslandsmeistari með Grindavík árin 2012 og 2013 og bikarmeistari árið 2014 og þekkir hann býsna vel til félagsins. 

Auk þess hafa þeir Ólafur Ólafsson og Þorsteinn Finnbogason framlengt samning sína við Grindavík. Þorleifur Ólafsson verður svo aðstoðarþjálfari Jóhanns Þórs Ólafssonar. 

„Körfuknattleiksdeild Grindavíkur er sönn ánægja að tilkynna um undirskrift við Sigurð nokkurn Þorsteinsson sem er þekkt stærð í íslenskum körfubolta.  Siggi hefur leikið sem atvinnumaður í Evrópu undanfarin 3 ár við góðan orðstír en taldi þetta góðan tímapunkt að snúa til baka í paradísina. Við bjóðum Sigga hjartanlega velkominn," segir í tilkynningu sem Grindavík sendi frá sér í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert