Slóvenía varð Evrópumeistari í körfubolta karla eftir 93:85-sigur liðsins gegn Serbíu í úrslitaleik mótsins í kvöld.
Það var stórleikur Goran Dragić sem var lykillinn að sigri Slóveníu í þessum leik, en hann skoraði 35 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.
Bogdan Bogdanović var hins vegar atkvæðamestur í liði Serba, en hann skoraði 22 stig og gaf þar að auki fimm stoðsendingar.
Dragić lét það í veðri vaka fyrir mótið að þetta yrði hans síðasta verkefni með slóvenska liðinu og fari það svo var svanasöngurinn svo sannarlega eftirminnilegur.
Þetta er í fyrsta skipti sem slóvenska liðið verður Evrópumeistari, en liðið hafði þar að auki aldrei leikið til úrslita á stórmóti áður.