Körfuboltamaðurinn Hilmar Pétursson er að ganga í raðir Hauka á nýjan leik eftir stutta dvöl í Keflavík. Karfan.is greinir frá.
Hilmar spilaði vel með Keflavík framan af, en hann hefur lítið fengið að spreyta sig eftir komu Harðar Axel Vilhjálmssonar í liðið.
Hann lék 15 leiki fyrir Keflavík og skoraði sex stig, tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar að meðaltali í leik.