Bandaríski körfuboltamaðurinn Kelvin Lewis er búinn að yfirgefa Hött á Egilsstöðum og ganga í raðir Kauhajoen Karhu í efstu deild Finnlands. Karfan.is greindi frá þessu í dag.
Þrjár umferðir eru eftir af Dominos-deild karla og er Höttur fallinn úr deildinni. Þrátt fyrir það hefur Lewis skorað 26 stig eð meðaltali í leik. Höttur mun ekki fá mann í staðinn fyrir Lewis og leikur því þrjá síðustu leikina án atvinnumanns.