Miðherjinn Ragnar Nathanaelsson verður ekki áfram í herbúðum Njarðvíkinga á næstu leiktíð en hann gekk í raðir þeirra fyrir tímabilið.
Frá þessu er greint á heimasíðu Njarðvíkinga en þar kemur fram;
„Samstarfi Njarðvíkur og miðherjans Ragnars Nathanaelssonar verður ekki áframhaldið á næstu leiktíð. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur vill þakka Ragnari fyrir samstarfið og hans framlag til klúbbsins.
Ákvörðun Njarðvíkur og Ragnars var sameiginleg og skilja leiðir í bróðerni. Undirbúningur fyrir næstu leiktíð er þegar hafinn í Ljónagryfjunni og greinum við frá frekari gangi mála um leið og unnt er.“
Ragnar, sem er 2,18 metrar á hæð hóf feril sinn með Hamri í Hveragerði en hann hefur einnig leikið með Þór Þorlákshöfn og Sundsvall Dragons í Svíþjóð. Á síðustu leiktíð lék hann með spænsku liðunum Arcos Albacete Basket og Cáceres Ciudad del Baloncesto en gekk svo í raðir Njarðvíkinga síðastliðið sumar.