Íslenska landsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri, mátti þola 105:75-tap fyrir Póllandi í öðrum leik sínum á EM í Bosníu í dag. Ísland hefur nú unnið einn leik og tapað einum á mótinu.
Pólska liðið vann fyrsta leikhlutann 23:19 og bætti jafnt og þétt í forskotið út leikinn. Hilmir Hallgrímsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 21 stig og Sveinn Birgisson bætti við ellefu stigum.
Ísland leikur við Ungverjaland í þriðja leik sínum á morgun.