Jakob Örn Sigurðarson og liðsfélagar hans hjá sænska körfuboltaliðinu Borås unnu sannfærandi 113:83-heimasigur á Uppsala í fyrstu umferð efstu deildar sænska körfuboltans í kvöld.
Íslendingurinn átti fínan leik fyrir Borås og skoraði tólf stig, tók eitt frákast og gaf fjórar stoðsendingar á rétt rúmum 19 mínútum.
Jakob er á sínu fjórða tímabili með Borås og hefur hann leikið í Svíþjóð samfleytt síðan 2009, fyrst með Sundsvall.