Þremur leikmönnum var hent út úr húsi í nótt þegar Houston Rockets vann 124:115-sigur gegn Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfuknattleik í Staples Center í Los Angeles í nótt. Brandon Ingram, leikmaður Lakers, braut á James Harden, leikmanni Rockets, með þeim afleiðingum að allt sauð upp úr í fjórða leikhluta.
Leikmenn létu hnefana tala inn á vellinum með þeim afleiðingum að Ingram, Rajon Rondo og Chris Paul voru allir reknir út úr húsi og eiga leikmennirnir þrír allir von á leikbanni. Þetta var fyrsti heimaleikur LeBron James með Lakers síðan hann kom til félagsins í sumar frá Cleveland Cavaliers.
Replay Review (Game Crew): player altercation in Q4 of #HOUatLAL. Ruling: Fighting technical foul ejections assessed to Rondo and Paul, two technical fouls and ejection assessed to Ingram. pic.twitter.com/EKSguqcDnk
— NBA Official (@NBAOfficial) October 21, 2018