Fleiri úr íslensku íþróttalífi en karlalandsliðið í knattspyrnu eru staddir í Belgíu í dag. Alþjóðadómarinn Davíð Tómas Tómasson mun þar annast dómgæslu í kvöld.
Davíð dæmir leik Spirou Basket og Istanbul BBSK í Evrópubikar karla í körfuknattleik í kvöld en leikurinn verður leikinn í Charleroi.
Davíð nýtur trausts á alþjóðavettvangi því hann er nú að dæma í sjötta sinn erlendis frá því keppnistímabilið hófst í haust.