Breiðablik hefur skipt um bandarískan leikmann hjá kvennaliði sínu í körfuknattleik því samningi hefur verið sagt upp við Violet Morrow og í staðinn hefur Danni Williams verið fengin til félagsins.
Williams kemur frá Texas þar sem hún lék með háskólaliði Texas A&M, sem er eitt af þeim sterkustu í bandaríska háskólaboltanum, eins og fram kemur á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Breiðabliks. Hún lék síðast í Púertóríkó og varð meistari með liði sínu þar.
Williams mun spila sinn fyrsta leik með Breiðabliki á morgun þegar liðið mætir Snæfelli í Smáranum. Kópavogsliðið hefur tapað sex af fyrstu sjö leikjum sínum í úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildinni, það sem af er þessu tímabili og er næstneðst í deildinni.
Breiðablik hefur samið við Danni Williams um að leika með liðinu það sem eftir lifir keppnistímabilsins. Félagið hefur sagt upp samningi sínum við Violet Morrow og þakkar henni fyrir þann tíma sem hún lék fyrir Breiðablik.
— Breiðablik Karfa (@BreidablikKarfa) November 22, 2019
Meira👇https://t.co/RgBfQoUDef#korfubolti #blikar #blix pic.twitter.com/YjrbCkkefV