Forráðamenn NBA-deildarinnar í körfubolta í Bandaríkjunum íhuga að láta spila alla úrslitakeppni deildarinnar í Las Vegas fyrir luktum dyrum. Þetta segir heimildarmaður Sports Illustrated.
Sumardeild NBA hefur farið fram í Vegas síðan 2004 og er samband deildarinnar og ríkisvalda í Nevada gott. Eina leiðtin til að úrslitakeppnin geti farið fram fyrr frekar en síðar er að spila hana í heilu lagi á sama staðnum.
Sports Illustrated greinir frá því að Las Vegas sé eina borgin sem forráðamenn deildarinnar eru að líta til.