Körfuboltagoðsögnin Kobe Bryant hefur verið tekinn inn í heiðurshöll bandarísku körfuknattleiksdeildarinnar fyrir glæsilegan feril sinn. Bryant varð NBA-meistari fimm sinnum en hann lést í þyrluslysi fyrr á árinu, 41 árs gamall.
Bryant er af mörgum talinn einn besti körfuboltamaður allra tíma. Hann er fjórði stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi með 33.643 stig. Lék hann allan atvinnumannsferilinn með Los Angeles Lakers, alls 20 ár, og er ein mesta goðsögn félagsins frá upphafi.
Bryant varð fimm sinnum NBA-meistari með Lakers og var í tvígang valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar og einu sinni mikilvægasti leikmaður deildarinnar. Hann var 18 sinnum valinn í úrvalslið Vesturdeildarinnar. Bryant varð ólympíumeistari með Bandaríkjunum í Peking 2008 og í London 2012.