Snæfell í þjálfaraleit

Gunnlaugur Smárason, til vinstri, er hættur með Snæfell.
Gunnlaugur Smárason, til vinstri, er hættur með Snæfell. Ljós­mynd/​Körfuknatt­leiks­deild Snæ­fells

Gunnlaugur Smárason mun ekki stýra kvennaliði Snæfells í körfubolta áfram en hann tók við liðinu fyrir tímabilið. Gunnlaugur, sem lék lengi með Snæfelli, var með liðið í sjötta sæti Dominos-deildarinnar þegar tímabilið var blásið af. 

Gunnlaugur tilkynnti um ákvörðun sína í löngu bréfi sem birtist í Snæfellsblaðinu. Var hann aðalþjálfari mestaraflokks í fyrsta skipti á síðustu leiktíð og vann Snæfell átta leiki en tapaði sextán. 

Hér að neðan má sjá hluta af bréfi Gunnlaugs til stuðningsmanna Snæfells. 

Það eru fáar fjölskyldur sem eru betri en Snæfellsfjölskyldan okkar. Fyrir rúmu ári hafði Gunni Svanlaugs samband við mig og sagðist vilja fá mig um borð til að stýra meistaraflokk kvenna. Ég hugsaði málið í nokkrar vikur með fjölskyldunni minni og komumst við að þeirri niðurstöðu að við gætum látið á þetta reyna. Ég vildi að sjálfsögðu hjálpa mínu uppeldisfélagi þegar kallið kom.  Ég fékk vin minn Gísla Pálsson til að vera aðstoðarþjálfari og þakka ég honum innilega sitt framlag til liðsins það skiptir máli að hafa mann sér við hlið sem sér hlutina stundum öðruvísi og er traustur. Svo var Gunnhildur Gunnars svona næsti aðstoðarþjálfari, það er mjög gott að hafa reynslubolta og keppniskonu eins og hana sér við hlið. Hún þekkir þetta allt inn og út og kenndi mér mikið á mínu fyrsta ári sem aðalþjálfari í kvennaliði. Í raun hef ég aldrei þjálfað kvennalið síðan Hildur Björg og fleiri voru að stíga sín fyrstu skref í mini-boltanum hérna um árið. Gunnhildur hefur eins og við öll vitum óstjórnandi áhuga á því að vinna og verða betri alla daga. Það er hugarfar sem við öll ættum að temja okkur. Hún er fyrirmynd sem ég get ekki hætt að hrósa og tala um, kærar þakkir fyrir þína hjálp Gunnhildur hún var mér og liðinu mikilvæg. 

Strax um vorið fórum við að hugsa um leikmannahópinn og vissum fyrir víst að Kristen væri í raun dottin út. Við tókum strax þá ákvörðun að reyna að halda tryggð við okkar heimastelpur og byggja þær upp fyrir kynslóðaskiptin sem við erum að ganga í gegnum. Viðbót við hópinn voru svo þrír erlendir leikmenn sem við töldum upp á vanta við annars fínan kjarna af íslenskum stúlkum. Það verður að viðurkennast að ég sá tækifæri til að vera með jafnari hóp og vildi ekki þennan afgerandi kana sem hefur verið hérna í mörg ár, það voru mín fyrstu mistök. Erlendi leikmaðurinn er gríðarlega mikilvægur í deildinni og það sýndi sig klárlega í fyrstu leikjunum og þá fimm leiki sem við vorum án kana en ég gef mér það eftir tímabilið að við höfum fengið góða reynslu á því að þurfa taka ákvarðanir innan sem utan vallar án kana í fjölmörgum leikjum. Heimastelpurnar græða án efa og ég vona að þær minnist þess þegar þær byrja sitt undirbúningstímabil fyrir næsta tímabil. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert