Hrunamenn upp um deild

Hrunamenn leika í 1. deild karla á komandi leiktíð.
Hrunamenn leika í 1. deild karla á komandi leiktíð. Ljósmynd/Facebook

Hrunamenn munu leika í 1. deild karla í körfuknattleik á næstu leiktíð en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem KKÍ sendi frá sér í dag. KV var boðið sæti í 1. deildinni en félagið afþakkaði boðið.

Hrunamönnum var því næst boðið að taka sætið sem þeir þáðu og því munu tíu lið leika í 1. deildinni á næstu leiktíð. Drög að leikjaniðurröðun í 1. deild karla og kvenna verður gefin út á næstu dögum að því er fram kemur í tilkynningu frá KKÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert