Körfuboltamaðurinn Jón Arnór Stefánsson mun spila með Val á Íslandsmótinu í körfubolta á næstu leiktíð samkvæmt heimildum Körfunnar og verða félagsskiptin tilkynnt á næstunni.
Jón Arnór er 38 ára gamall og af mörgum talinn besti körfuboltamaður Íslandssögunnar. Hann á 20 ára meistaraflokksferil að baki og þar af lék hann þrettán tímabil erlendis, í Þýskalandi, Rússlandi, Ítalíu og á Spáni, auk þess sem hann var um tíma í leikmannahópi NBA-liðsins Dallas Mavericks, án þess þó að spila í deildinni.
Hann vann Evrópudeild FIBA með Dynamo Saint Petersburg frá Rússlandi árið 2005, hefur tólf sinnum verið kjörinn körfuknattleiksmaður ársins hér á landi, íþróttamaður ársins 2014 og unnið Íslandsmeistaratitilinn fimm sinnum með KR en þar hefur hann verið síðan 2016.
Sömuleiðis hafa verið orðrómar um að Helgi Magnússon fari með Jóni til Vals en þó er talið líklegra að hann verði áfram í KR.