Körfuknattleiksdeild Hauka hefur gengið frá samningi við kanadíska framherjann Shane Osayande og mun hann leika með liðinu á komandi leiktíð.
Osayande er 27 ára gamall og sléttir tveir metrar á hæð. Hefur hann leikið í B-deild Spánar síðustu ár og þar á undan í heimalandinu og Kólumbíu.
Kólumbíumaðurinn Hansel Atencia mun einnig leika með Haukum á næsta tímabili en hann kemur til félagsins frá Þór Akureyri þar sem hann lék á síðustu leiktíð og skoraði 18 stig, tók þrjú fráköst og gaf sex stoðsendingar að meðaltali í leik.