Óvæntur en sannfærandi sigur Þórs

Larry Thomas skorar fyrir Þórsara í leiknum í Garðabæ í …
Larry Thomas skorar fyrir Þórsara í leiknum í Garðabæ í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Þórsarar úr Þorlákshöfn urðu í kvöld fyrstir til að sigra Stjörnuna í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Dominos-deildinni, á þessu keppnistímabili þegar þeir unnu óvæntan útisigur í Garðabænum, 111:100.

Þórsarar eru þá komnir með fjögur stig eftir fjóra leiki en Stjarnan er með sex stig.

Fyrsti leikhlutinn var galopinn og fjörugur, liðin skoruðu rúm 60 stig og Þór var yfir að honum loknum, 31:30. Stjarnan var hinsvegar með forystu í hálfleik, 54:50.

Í þriðja leikhluta fór allt á flug á ný, Þórsarar náðu undirtökunum með því að skora 34 stig gegn 26 og voru síðan komnir tíu stigum yfir þegar langt var liðið á fjórða leikhluta. Garðbæingar réðu ekki við þá á lokasprettinum og Þór sigldi heim all sannfærandi sigri.

Ragnar Örn Bragason og Adomas Drungilas skoruðu 20 stig hvor fyrir Þór og Drungilas tók auk þess 14 fráköst. Emil Karel Einarsson og Larry Thomas skoruðu 16 stig og Styrmir Snær Þrastarson, 19 ára framherji, átti flottan leik og skoraði 15 stig og tók 9 fráköst.

Þeir Gunnar Ólafsson og Ægir Þór Steinarsson skoruðu 24 stig hvor fyrir Stjörnuna, Mirza Sarajlija gerði 19 og Hlynur Bæringsson var með 11 stig og 10 fráköst.

Gangur leiksins: 9:5, 14:12, 25:21, 30:31, 34:34, 43:40, 50:42, 54:50, 62:55, 69:66, 72:78, 80:84, 88:90, 90:100, 96:107, 100:111.

Stjarnan: Gunnar Ólafsson 24, Ægir Þór Steinarsson 24/6 fráköst/6 stoðsendingar, Mirza Sarajlija 19, Hlynur Elías Bæringsson 11/10 fráköst/6 stoðsendingar, Dúi Þór Jónsson 9, Hugi Hallgrímsson 6/5 fráköst, Friðrik Anton Jónsson 4, Arnþór Freyr Guðmundsson 3.

Fráköst: 18 í vörn, 12 í sókn.

Þór Þorlákshöfn: Adomas Drungilas 20/14 fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot, Ragnar Örn Bragason 20, Larry Thomas 16/7 stoðsendingar, Emil Karel Einarsson 16, Styrmir Snær Þrastarson 15/9 fráköst, Callum Reese Lawson 13/7 fráköst, Halldór Garðar Hermannsson 9, Benedikt Þorvaldur G. Hjarðar 2.

Fráköst: 25 í vörn, 13 í sókn.

Dómarar: Kristinn Óskarsson, Rögnvaldur Hreiðarsson, Friðrik Árnason.

Áhorfendur: 50

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert