Borche Ilievski þjálfari ÍR var þrátt fyrir tap gegn Keflavík í kvöld nokkuð brattur en liðin mættust í Keflavík í Dominosdeild karla í körfuknattleik.
Keflavík hafði betur í leiknum 86:79. Borche sagði sína menn hafa gert ágætlega í þriðja leikhluta og að liðið hafi þá byrjað að spila körfubolta eftir að hafa lent undir með 19 stigum í fyrri hálfleik.
Borche sagði þá sína menn hafa áttað sig á því að þeir gætu vel haft í fullu tré við Keflvíkinga og byggðu á því. Hins vegar hefði skort á styrk liðsins að klára og að Keflvíkingar voru með Milka í sínum röðum sem sá um að leysa þeirra vandamál þegar mest á reyndi. Milka lauk leik með 34 stig og 10 fráköst.