Yfirlýsing vegna slagsmála í Grindavík

Það er hart barist í einvígi Stjörnunnar og Grindavíkur.
Það er hart barist í einvígi Stjörnunnar og Grindavíkur. Mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Mikill hiti var í stuðningsmönnum Grindavíkur og Stjörnunnar er liðin mættust í átta liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta í Grindavík í gærkvöldi og brutust út slagsmál með þeim afleiðingum að einum stuðningsmanni var vikið út úr húsi.

Félögin hafa nú sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna málsins sem má sjá hér fyrir neðan.

Yfirlýsing Grindavíkur og Stjörnunnar vegna óæskilegrar hegðunar

Í gær fór fjórði leikur Grindavíkur og Stjörnunnar fram í úrslitakeppni Dominos-deildar karla. Leikurinn var jafn og spennustigið hátt, þar sem mikið var undir fyrir bæði lið.

Því miður létu stuðningsmenn liðanna kappið bera fegurðina ofurliði en slagsmál brutust út í stúkunni í þriðja leikhluta. Forsvarsmenn beggja félaga harma þessa framkomu og vilja gefa skýr skilaboð til allra að slík hegðun er með öllu óásættanleg.

Við berum öll ábyrgð á okkar hegðun og þegar við klæðumst einkennisbúningi okkar félags þá er mikilvægt að við endurspeglum þau gildi sem félögin standa fyrir. Við hvetjum alla félagsmenn innan vallar sem utan til að standa vörð um þau.

Ingibergur Þór Ólafarson,

formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur

Hilmar Júlíusson,

formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert