Sterkur sigur á Dönum

Elísabeth Ýr Ægisdóttir var stigahæst í íslenska liðinu.
Elísabeth Ýr Ægisdóttir var stigahæst í íslenska liðinu. Mbl.is/ Íris Jóhannsdóttir

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 18 ára og yngri hafði betur gegn Danmörku, 68:55, á Norðurlandamótinu í Finnlandi í dag.

Danska liðið vann fyrsta leikhlutann 23:15 en Ísland svaraði með því að vinna næstu þrjá og leikinn sannfærandi í leiðinni.

Elísabeth Ýr Ægisdóttir var stigahæst hjá íslenska liðinu með 18 stig og hún tók einnig sex fráköst. Agnes María Svansdóttir skoraði 16 stig og Emma Theodórsson gerði tíu stig og tók fimm fráköst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert