Elvar Már Friðriksson landsliðsmaður í körfuknattleik var með nokkuð sérstaka tölfræði í dag þegar lið hans, Antwerp Giants frá Belgíu, tapaði fyrir Kiev, 90:82, í úkraínsku höfuðborginni þegar liðin mættust þar í Evrópubikar FIFA.
Elvar lék í 30 mínútur af 40 fyrir Antwerp en náði ekki að skora stig og átti aðeins fimm skot í öllum leiknum. Hann var hinsvegar afar drjúgur við að mata liðsfélagana og átti 10 stoðsendingar, ásamt því að taka fjögur fráköst.
Þetta var fyrsti leikurinn í riðlakeppni sextán liða úrslitanna en með þessum liðum í riðli eru Reggiana frá Ítalíu og Crailsheim Merlins frá Þýskalandi.