Íslandsmeistararnir í Val sóttu tvö stig til Keflavíkur í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld en framlengja þurfti viðureign Keflavíkur og Vals til að fá fram úrslit.
Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 67:67 en Valur vann 79:74 þegar uppi var staðið. Valur er með 16 stig í 3. sæti eftir ellefu leiki en liðið á leik til góða á Njarðvík og Fjölni sem eru í efstu tveimur sætunum.
Keflavík gæti verið að dragast aftur úr en liðið er með 12 stig eftir ellefu leiki. Haukar eiga þrjá leiki til góða á Keflavík með sín 10 stig.
Blue-höllin, Subway deild kvenna, 08. desember 2021.
Gangur leiksins:: 1:7, 8:10, 14:17, 16:20, 23:20, 25:30, 30:34, 32:36, 32:43, 35:45, 43:47, 46:51, 51:54, 57:59, 65:64, 67:67, 72:70, 74:79.
Keflavík: Ólöf Rún Óladóttir 15, Katla Rún Garðarsdóttir 13/7 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 12, Agnes María Svansdóttir 11/4 fráköst, Daniela Wallen Morillo 11/15 fráköst, Tunde Kilin 9, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 2/7 fráköst, Eygló Kristín Óskarsdóttir 1.
Fráköst: 31 í vörn, 10 í sókn.
Valur: Ameryst Alston 33/18 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 18/7 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 13/13 fráköst, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 9/5 fráköst, Sara Líf Boama 4/7 fráköst, Eydís Eva Þórisdóttir 2.
Fráköst: 40 í vörn, 13 í sókn.
Dómarar: Aðalsteinn Hjartarson, Gunnlaugur Briem, Georgia Olga Kristiansen.
Áhorfendur: 95