Njarðvík vann Breiðablik í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld 68:67 eftir mikla spennu.
Diane Diéné tryggði Njarðvík bæði stigin þegar hún skoraði úr tveimur vítaskotum þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum. Breiðablik tókst ekki að nýta síðustu sóknina og Njarðvíkingar fögnuðu enn einum sigrinum í deildinni á tímabilinu.
Njarðvík er með 20 stig eftir að hafa unnið tíu af fyrstu tólf leikjunum. Er liðið á toppnum en Breiðablik hefur aðeins unnið tvo leiki og er í næstneðsta sæti.
Gangur leiksins hefur því sjálfsagt komið einhverjum á óvart. Njarðvík var með ellefu stiga forskot í stöðunni 62:61 en þá skoraði Breiðablik tíu stig í röð. Svo fór að Blikar komust yfir 67:66 en eins og áður segir skoraði Breiðablik síðustu tvö stigin.
Ljónagryfjan, Subway deild kvenna, 08. desember 2021.
Gangur leiksins:: 7:5, 13:12, 20:15, 23:22, 25:26, 35:31, 38:35, 42:39, 46:46, 50:48, 50:51, 55:51, 62:51, 62:58, 64:61, 68:67, 68:67, 68:67.
Njarðvík: Aliyah A'taeya Collier 24/12 fráköst, Lavína Joao Gomes De Silva 16/6 fráköst/7 stoðsendingar, Diane Diéné Oumou 14/9 fráköst, Vilborg Jonsdottir 6, Lára Ösp Ásgeirsdóttir 3, Helena Rafnsdóttir 3/4 fráköst, Kamilla Sól Viktorsdóttir 2.
Fráköst: 35 í vörn, 2 í sókn.
Breiðablik: Michaela Lynn Kelly 19/10 fráköst/8 stoðsendingar, Iva Georgieva 13/5 fráköst, Isabella Ósk Sigurðardóttir 9/11 fráköst, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir 9, Birgit Ósk Snorradóttir 7/5 fráköst, Anna Soffía Lárusdóttir 5, Telma Lind Ásgeirsdóttir 4, Eyrún Ósk Alfreðsdóttir 1.
Fráköst: 31 í vörn, 12 í sókn.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Stefán Kristinsson.
Áhorfendur: 65