Stórsigur Fjölnis í Borgarnesi

Dagný Lísa Davíðsdóttir skoraði 26 stig fyrir Fjölni í kvöld …
Dagný Lísa Davíðsdóttir skoraði 26 stig fyrir Fjölni í kvöld og tók 12 fráköst. mbl.is/Óttar Geirsson

Fjölnir vann stórsigur á Skallagrími, 105:70, þegar liðin mættust í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Subway-deildinni, í Borgarnesi í kvöld.

Fjölnir komst þar með að hlið Njarðvíkur á toppnum með 18 stig en Njarðvík á til góða leik gegn Breiðabliki sem nú stendur yfir í Kópavogi. Skallagrímskonur eru áfram stigalausar á botni deildarinnar eftir ellefu leiki.

Fjölnir komst í 28:13 í fyrsta leikhluta og var með algjöra yfirburðastöðu í hálfleik, 55:21. Eftirleikurinn var Grafarvogskonum mjög auðveldur.

Dagný Lísa Davíðsdóttir skoraði 26 stig fyrir Fjölni og  tók 12 fráköst. Iva Bosnjak skoraði 17 stig og Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir 14.

Nikola Nedoroscikova skoraði 18 stig fyrir Skallagrím, Breana Bay 17 og Maja Michalska 15. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert