Hin átján ára gamla Tinna Guðrún Alexandersdóttir fór fyrir Haukum sem sigruðu Grindvíkinga 68:63 í Subway-deild kvenna í körfuknattleik á Ásvöllum í kvöld.
Tinna var stigahæst hjá Haukum með 21 stig og var með mjgö góða skotnýtingu. Setti niður þrjá þrista í sex tilraunum og hitti úr fjórum af sex skotum innan teigs.
Robbi Ryan var stigahæst hjá Grindavík með 19 stig en Grindvíkingar voru yfir 35:30 að loknum fyrri hálfleik.
Haukar eru með 10 stig í 5. sæti eftir átta leiki. Liðið hefur leikið töluvert færri leiki en önnur lið í deildinni vegna anna í Evrópukeppni. Grindavík er með 8 stig eftir tólf leiki og er í 6. sæti.
Ásvellir, Subway deild kvenna, 08. desember 2021.
Gangur leiksins:: 4:5, 8:7, 12:13, 16:18, 20:21, 24:28, 26:33, 30:35, 34:37, 34:42, 39:50, 47:53, 55:58, 55:58, 62:60, 68:63, 68:63, 68:63.
Haukar: Tinna Guðrún Alexandersdóttir 21, Haiden Denise Palmer 13/10 fráköst/8 stoðsendingar, Bríet Sif Hinriksdóttir 12/6 stoðsendingar, Lovísa Björt Henningsdóttir 6/4 fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 6/4 fráköst, Rósa Björk Pétursdóttir 4, Agnes Fjóla Georgsdóttir 4, Elísabeth Ýr Ægisdóttir 2/8 fráköst.
Fráköst: 27 í vörn, 6 í sókn.
Grindavík: Robbi Ryan 19/10 fráköst/9 stoðsendingar, Arna Sif Elíasdóttir 13, Hulda Björk Ólafsdóttir 10, Edyta Ewa Falenzcyk 7/7 fráköst, Hekla Eik Nökkvadóttir 6, Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir 3/5 fráköst, Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir 3, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 2/4 fráköst.
Fráköst: 25 í vörn, 10 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Friðrik Árnason, Guðmundur Ragnar Björnsson.
Áhorfendur: 50