Stórsigur Þórs gegn KR

Luciano Massarelli skoraði 30 stig fyrir Þórsara í kvöld.
Luciano Massarelli skoraði 30 stig fyrir Þórsara í kvöld. mbl.is/Unnur Karen

Íslandsmeistararnir í Þór Þorlákshöfn unnu stórsigur á KR í Subway-deild karla í körfuknattleik í Þorlákshöfn í kvöld. 

Sigur Þórsara var í lítilli hættu þótt jafnræði hafi verið með liðinum í fyrsta leikhluta. Þór var yfir 55:39 að loknum fyrri hálfleik og í síðari hálfleikinn var munurinn um tíma hátt í þrjátíu stig. KR saxaði á forskoti í síðasta leikhlutanum og Þór vann 101:85. 

Þór fór upp að hlið Keflavíkur á toppi deildarinnar með 14 stig með þessum sigri en KR er með 8 stig í 7. sæti. 

Þór Þ. - KR 101:85

Icelandic Glacial höllin, Subway deild karla, 09. desember 2021.

Gangur leiksins:: 10:9, 19:17, 23:22, 24:26, 31:28, 36:31, 48:34, 55:39, 64:42, 70:48, 76:51, 79:59, 85:62, 90:67, 97:77, 101:85.

Þór Þ.: Luciano Nicolas Massarelli 30, Glynn Watson 18/9 fráköst/6 stoðsendingar, Daniel Mortensen 13/6 fráköst, Tómas Valur Þrastarson 13, Ragnar Örn Bragason 10, Ronaldas Rutkauskas 7/10 fráköst, Emil Karel Einarsson 6/6 fráköst, Ísak Júlíus Perdue 4.

Fráköst: 28 í vörn, 11 í sókn.

KR: Adama Kasper Darbo 17, Þorvaldur Orri Árnason 15, Shawn Derrick Glover 13/5 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 11, Almar Orri Atlason 10/4 fráköst, Eyjólfur Ásberg Halldórsson 6/5 fráköst, Alexander Óðinn Knudsen 5/8 fráköst, Björn Kristjánsson 4/4 fráköst, Veigar Áki Hlynsson 4/4 fráköst.

Fráköst: 29 í vörn, 7 í sókn.

Dómarar: Gunnlaugur Briem, Davíð Kristján Hreiðarsson, Ingi Björn Jónsson.

Áhorfendur: 100

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert