Valsmönnum tókst að snú erfiðri stöðu sér í vil í síðasta leikhlutanum þegar þeir heimsóttu Þórsara í íþróttahöllina á Akureyri í Subway-deild karla í körfuknattleik í kvöld.
Valur sigraði 79:75 en Þór var yfir 73:65 þegar rúmar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Þá setti Pálmi Geir Jónsson niður tvo þrista fyrir Val og minnkaði muninn niður í tvö stig. Valsmenn sem léku án landsliðsmannsins Kára Jónssonar gengu á lagið á lokakaflanum þar sem Benedikt Blöndal og Kristófer Acox voru drjúgir.
Valsmenn eru nú með 12 stig eftir níu leiki eins og fleiri lið en efsta liðið Keflavík er með 14 stig. Þórsarar eru enn án sigurs á botni deildarinnar en miðað við leikinn í kvöld þá styttist í fyrsta sigurleikinn.
Dúi Þór jónsson var stigahæstur hjá Þór með 21 stig en Pablo Bertone hjá Val með 26 stig.
Höllin Ak, Subway deild karla, 09. desember 2021.
Gangur leiksins:: 7:6, 14:10, 19:16, 25:22, 28:27, 31:32, 37:32, 41:40, 48:48, 48:50, 52:55, 56:57, 66:59, 73:68, 73:75, 75:79.
Þór Ak.: Dúi Þór Jónsson 21/5 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Eric Etienne Fongue 18, Atle Bouna Black Ndiaye 10, Jérémy Jean Bernard Landenbergue 10/4 fráköst, Ragnar Ágústsson 8/7 fráköst, Reginald Keely 8/9 fráköst.
Fráköst: 23 í vörn, 8 í sókn.
Valur: Pablo Cesar Bertone 26/8 fráköst/6 stoðsendingar, Kristófer Acox 21/20 fráköst, Callum Reese Lawson 8, Benedikt Blöndal 8/4 fráköst, Sveinn Búi Birgisson 7, Pálmi Geir Jónsson 6/8 fráköst, Hjálmar Stefánsson 3.
Fráköst: 32 í vörn, 16 í sókn.
Dómarar: Aðalsteinn Hjartarson, Friðrik Árnason, Georgia Olga Kristiansen.
Áhorfendur: 86