Lið Golden State Warriors lítur mjög vel út en það vann enn einn leikinn í NBA-deildinni í körfubolta vestanhafs í nótt. Liðið vann sterkan 138:96 sigur á Chicago Bulls sem hefur einnig spilað mjög vel í vetur.
Slóveninn Luka Doncic fór fyrir sínum mönnum í Dallas Mavericks þegar þeir unnu 112:85 sigur á Memphis Grizzlies. Doncic gerði þrefalda tvennu í leiknum en hann skoraði 27 stig, tók 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar.
Öll úrslit næturinnar má sjá hér að neðan.
Orlando Magic 116:109 Charlotte Hornets
Toronto Raptors 87:103 Detroit Pistons
Pheonix Suns 112:94 Indiana Pacers
Boston Celtics 99:111 Philadelphia 76'ers
Golden State Warriors 138:96 Chicago Bulls
Atlanta Hawks 118:124 Miami Heat
Cleveland Cavaliers 114:109 San Antonio Spurs
Dallas Mavericks 112:85 Memphis Grizzlies
Houston Rockets 114:126 Sacramento Kings