Undanþága til að mæta Ítölum á Ásvöllum

Íslenska liðið sem sigraði Hollendinga í Almere í fyrsta leiknum …
Íslenska liðið sem sigraði Hollendinga í Almere í fyrsta leiknum í undankeppni HM. Ljósmynd/FIBA

Körfuknattleikssamband Íslands hefur fengið undanþágu til að karlalandslið Íslands leiki heimaleik sinn gegn Ítalíu í undankeppni heimsmeistaramótsins í Ólafssal á Ásvöllum 24. febrúar.

Laugardalshöllin, sem er á undanþágu hjá FIBA, er enn ónothæf og því ekkert löglegt keppnishús til staðar á Íslandi þannig að horfur voru á að heimaleikurinn þyrfti að fara fram erlendis.

Í tilkynningu frá KKÍ segir m.a. að leyfi hafi fengist fyrir þessum eina heimaleik þar sem ríkisstjórn Íslands hafi sett málefni þjóðarleikvangs inniíþrótta í forgang.

Tilkynning KKÍ er þannig í heild sinni:

Framundan er landsliðsgluggi hjá landsliði karla í körfuknattleik þegar liðið á tvo leiki á dagskránni í undankeppni HM 2023 gegn Ítalíu í febrúar. Leikið verður heima og að heiman en fyrri leikurinn er hér á landi og svo fer sá síðari fram á Ítalíu.

Heimaleikur Íslands verður í Ólafssal að Ásvöllum í Hafnarfirði fimmtudaginn 24. febrúar og útileikurinn fer fram sunnudaginn 27. febrúar í Pala Dozza höllinni í Bologna. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV.

Í nóvember sl. fékk kvennalandsliðið heimild til að leika í Hafnarfirði með sérstöku leyfi FIBA og tókst það vel til.

FIBA hefur samþykkt sérstaka ósk KKÍ um að leika heimaleikinn í Ólafssal að Ásvöllum með því að uppfylla aftur kröfur FIBA um allan búnað og aðstöðu. Laugardalshöllin er ennþá óstarfhæf líkt og áður og sér ekki fyrir endan á því hvenær hún verður tilbúin til notkunar á ný. FIBA gaf leyfi nú fyrir Ólafssal fyrir þessum eina heimaleik þar sem ríkisstjórn Íslands hefur sett málefni þjóðarleikvangs inniíþrótta í forgang og í vor á að vera kominn niðurstaða í þá vinnu.  

KKÍ þakkar starfsfólki Laugardalshallar fyrir góða aðstoð og vinnu við að leysa málið en KKÍ þarf að fá talsvert af búnaði að láni frá Laugardalshöll svo hægt sé að gera Ólafssal leikhæfan samkvæmt kröfum FIBA. Einnnig þakkar KKÍ Haukum fyrir sína aðstoð og samstarf fyrir þennann leik og þann sem var í nóvember hjá stelpunum.

Koma verður í ljós hvort áhorfendur verða leyfðir í Ólafssal en það verður auglýst nánar síðar þegar það liggur fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert