Sjö leikmenn áfram í Laugardalnum

Körfuknattleiksmennirnir sjö ásamt Austin Bracey, lengst til vinstri og Ólafi …
Körfuknattleiksmennirnir sjö ásamt Austin Bracey, lengst til vinstri og Ólafi Þór Jónssyni, þjálfari liðsins, lengst til hægri. Ljósmynd/Ármann

Sjö körfuknattleiksleikmenn hafa framlengt samning sinn við Ármann og leika því með liðinu á komandi tímabili í 1. deildinni, en liðið er nýliði þar. 

Þessir sjö leikmenn léku allir með liðinu sem fór ósigrað í gegnum 2. deildina. Það eru þeir Illugi Steingrímsson, Oddur Birnir Pétursson, Guðjón Hlynur Sigurðarson, Kristófer Már Gíslason, Gunnar Örn Ómarsson, Júlíus Þór Árnason og Halldór Fjalar Helgason. 

Félagið er aldeilis að styrkja sig fyrir komandi átök sem nýliðar, en það samdi einnig við reynsluboltann Austin Bracey í gær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert