Lið Breiðabliks í körfubolta karla samdi við Clayton Riggs Ladine frá Hrunamönnum í fyrstu deild. Clayton er bandarískur bakvörður en hann er með franskt vegabréf.
Clayton skilaði 24 stigum, 6 fráköstum og 8 stoðsendingum að meðaltali í leik á síðustu leiktíð.
„Clayton þykir traustur bakvörður, með gott skot og að auki þótti hann einstaklega góður liðsmaður, bæði innan og utan vallar og stóð sig vel í þjálfun yngri flokka, en hann mun jafnframt taka að sér þjálfun hjá deildinni,“ kemur fram í tilkynningu liðsins.
Þar sem Clayton er með franskt vegabréf getur Breiðablik ennþá sótt bandaríkjamann og verið er að vinna í því samkvæmt tilkynningunni.