KR krækir í Eista

Saimon Sutt.
Saimon Sutt. Ljósmynd/KR

Körfuknattleiksdeild KR hefur samið við Eistann Saimon Sutt um að leika með karlaliði félagsins á komandi tímabili. 

Sutt er 27 ára gamall, fjölhæfur leikmaður sem er 201 sentimetri á hæð.

Hann hefur lengst af leikið í efstu deild í heimalandi sínu en einnig í Austurríki sem og í sameiginlegri úrvalsdeild Lettlands og Eistlands.

„Saimon er mjög fjölhæfur og spennandi leikmaður sem getur leyst margar stöður fyrir okkur inni á vellinum.

Við hlökkum til að fá hann til landsins og halda áfram undirbúningi fyrir komandi tímabil,“ sagði Helgi Már Magnússon, þjálfari karlaliðs KR, í samtali við heimasíðu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert