Roberts Freimanis er genginn til liðs við karlalið KR og mun hann leika með liðinu á komandi keppnistímabili í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, Subway-deildinni.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Freimanis, sem er 31 árs gamall, er 205 sentímetra framherji.
Hann lék síðast með Academic Plodiv í efstu deild Búlgaríu þar sem hann skoraði 11 stig að meðaltali, ásamt því að taka sjö fráköst.
„Roberts hefur lengst af leikið í Lettlandi en einnig í Eistlandi sem og sameiginlegri úrvalsdeild Eistlands og Lettlands,“ segir meðala annars í tilkynningu Vesturbæinga.
KR hafnaði í áttunda sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og féll úr leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins eftir tap gegn Njarðvík.