Elísabeth heldur til Bandaríkjanna

Elísabeth Ýr Ægisdóttir í leik með Haukum. Emma Sóldís er …
Elísabeth Ýr Ægisdóttir í leik með Haukum. Emma Sóldís er í Fjölnistreyju fyrir miðri mynd, áður en hún skipti yfir í Hauka. mbl.is/Arnþór Birkisson

Körfuknattleikskonan Elísabeth Ægisdóttir, leikmaður Hauka, hefur samið við Liberty-háskólann í Virginíu og mun hún leika með körfuboltaliði skólans samhliða námi.

Hún klárar yfirstandandi tímabil með Haukum og heldur síðan til Bandaríkjanna. Liðið leikur í Conference USA-deildinni.

Elísabeth verður ekki eina Haukakonan í skólanum á næstu leiktíð, því Emma Sóldís Hjördísardóttir samdi einnig við skólann á dögunum. Verða þær því áfram liðsfélagar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert