Michalska til Fjölnis

Maja Michalska í leik með Skallagrími gegn Fjölni á síðasta …
Maja Michalska í leik með Skallagrími gegn Fjölni á síðasta ári. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hin pólska Maja Michalska er gengin til liðs við kvennalið Fjölnis í körfuknattleik og mun leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil.

Michalska sem er 27 ára gömul, hefur undanfarin ár leikið með Skallagrími og varð til að mynda bikarmeistari með liðinu árið 2020.

Lék hún einn leik með liðinu í Subway-deild kvenna á síðasta tímabili áður en það dró sig úr keppni í desember á síðasta ári.

Michalska getur bæði leikið sem bakvörður og framherji.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert