Jón Axel Guðmundsson og félagar í Pesaro lögðu Sassari 81:75 í ítölsku A-deildinni í körfubolta í kvöld.
Jón Axel setti sex stig, tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu í liði Pesaro en hann lék í 21. mínútu.
Pesaro er nú með tíu stig í fimmta sæti deildarinnar.