Njarðvíkingar sterkari í Ljónagryfjunni

Aliyah Collier átti stórleik í kvöld.
Aliyah Collier átti stórleik í kvöld. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Aliyah Collier var stigahæst hjá Njarðvík þegar liðið tók á móti Fjölni í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Subway-deildinni, í Ljónagryfjunni í Njarðvík í 24. umferð deildarinnar í kvöld.

Leiknum lauk með sjö stiga sigri Njarðvíkur, 80:73, en Collier skoraði 20 stig, tók níu fráköst og gaf sex stoðsendingar.

Njarðvíkingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu með sjö stigum í hálfleik, 45:38. Njarðvík leiddi með átta stigum eftir þriðja leikhluta og Fjölni tókst ekki að snúa leiknum sér í vil í fjórða leikhluta.

Lavina Gomes skoraði 18 stig fyrir Njarðvík og tók níu fráköst en Brittany Dinkins var stigahæst hjá Fjölni með 24 stig, 12 fráköst og sjö stoðsendingar.

Njarðvík er með 26 stig í fjórða sætinu en Fjölnir er í því sjötta með 14 stig.

Ásta Júlía Grímsdóttir skoraði 22 stig í kvöld.
Ásta Júlía Grímsdóttir skoraði 22 stig í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stórsigur Vals

Þá var Ásta Júlía Grímsdóttir stigahæst hjá Val þegar liðið vann stórsigur gegn ÍR í Skógarseli í Breiðholti, 94:53, en Ásta Júlía skoraði 22 stig, tók ellefu fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Valur leiddi með 14 stigum í hálfleik, 48:34, og ÍR-ingar voru aldrei líklegir til þess að snúa leiknum sér í vil í síðari hálfleik.

Kiana Johnson skoraði 15 stig fyrir Val, tók tvö fráköst og gaf sjö stoðsendingar en Greeta Uprus og Aníka Lind Hjálmarsdóttir voru stigahæstar hjá ÍR með tíu stig hvor.

Valur fer með sigrinum í efsta sæti deildarinnar í 40 stig en ÍR er sem fyrr í neðsta sætinu með tvö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert