Sigurinn skiptir öllu

Mario Matasovic spilaði gríðarlega vel í kvöld þegar Njarðvíkingar tryggðu sig í undanúrslit Íslandsmóts karla í körfubolta með 102:93-sigri á Grindavík.

Matasovic skoraði 20 stig fyrir þá grænu og var með fantagóða vörn á ögurstundu. Hann sagði að frammistaða Njarðvíkur í þessum þremur leikjum sýndi að Njarðvíkingar væru sterkara lið en Grindavík. Matasovic sagði vissulega bæði lið hafa átt sín áhlaup í gegnum seríuna en það væri það sem búast mætti við í úrslitakeppninni.

Matasovic sagði að þegar öllu væri á botninn hvolft þá væri það sigurinn sem skiptir máli og ekki spurt um hvernig þú næðir honum á meðan það væri gert á heiðarlegan hátt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert